Hrísgrjón með grænmeti, Tzay og ristuðum graskersfræjum
Ég nota alltaf hrísgrjón venjuleg og blanda við þau villtum. Það virkar alltaf mjög vel. En auðvitað er hægt að nota hirsi, kúskús eða annars konar grjón. Og svo er hægt að nota möndlur eða heilar kasjúhnetur í stað Tzay, eða með því.
Fyrir 2
½ poki | Tzay (smelltu hér til að fá nánari upplýsingar) |
80 – 100 gr | Hrísgrjón |
1 stk | Laukur (miðlungs stærð – Skorinn) |
80 gr | Kúrbítur |
80 gr | Sveppir |
1 st | Gulrót |
100 gr. | Spergilkál |
100 gr. | Blómkál |
2 msk | Graskersfræ (valkostur) |
½ tsk | Timían |
100 gr. | Tamari sósa |
100 gr. | Steikingarolía (tildæmis Repjuolía eða Sólblómaolía) |
Aðferð:
Ristið graskersfræ í pönnu og setið smá tamarí með.
Afþýða Tzay.
Sjóðið hrísgrjón í 30 mínútur, notið tvísvar sinnum meira vatn en grjón.
Sjóðið blómkál í 7 mínútur, en bætið spergilkáli við eftir 2 mínútur. Hellið vatninu frá.
Hitið olíu á pönnu með smá salti og timian. Steikið lauk og gulrót. Eftir nokkrar mínútar, bætið kúrbít við og Tzay, og síðast sveppi. Steikið uns grænmetið er mjúkt.
Þessu blandar maður öllu saman og stráir td. graskersfræjum yfir, og tamarí sósu eftir smekk.
Uppskrift:
Lowana Veal